Farsældartengill NÚ

Á Íslandi hafa ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna tekið gildi. Í NÚ er farsældartengillinn Hildur Loftsdóttir og hægt er að hafa samband við farældartengilinn gegnum netfangið hildur@framsynmenntun.is.

Farsældarlögin voru innleidd á Íslandi árið 2021 þar segir að öll börn eiga rétt á að fá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda. Það getur verið flókið að fá aðstoð við hæfi og vita hvert eigi að leita eftir henni. Lögin eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Í NÚ starfar farsældarteymi sem er einnig brúarteymi stundum kallað nemendaverndarráð, í teyminu er námsráðgjafi NÚ, menntastjóri NÚ og aðstoðarmenntastjóri NÚ sem er jafnframt tengiliður farsældar.  Tengiliður skal vera aðgengilegur öllum börnum og foreldrum og hefur hann viðeigandi þekkingu til að vera innan handar og aðstoða við að sækja viðeigandi þjónustu við hæfi. Þannig geta foreldrar og börn leitað til eins aðila sem hefur yfirsýn yfir allt þjónustukerfið. Sjá nánar um farsældarteymið í Starfsáætlun NÚ.

Þegar óskað er eftir samþættingu þá fer af stað teymisvinna þar sem hægt er að miðla upplýsingum á milli aðila sem þjónusta barnið. Við samþættinguna þá fær barnið úthlutað málstjóra frá sveitarfélaginu þar sem barnið er með lögheimili.