Grunnskóli fyrir 8.-10. bekkinga sem leggur áherslu á íþróttir, hreyfingu, heilsu og vendinám. NÚ er viðurkenndur af Menntamálastofnun, starfar samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla og lýtur lögum og reglugerðum um íslenska grunnskóla.
Nemendur frá Hafnarfirði og Garðabæ greiða ekki námsgjöld í NÚ. Námsgjöldin skólaárið 2025-26 verða 29.900 kr. á mánuði í 10 mánuði fyrir nemendur úr öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarfélög utan þess gætu haft ólíkan hátt á greiðslum til sjálfstætt starfandi skóla vegna nemenda sinna og gæti það haft áhrif á greiðsluþátttöku viðkomandi nemenda. Vinsamlegast kynntu þér fyrirkomulagið í þínu sveitarfélagi.
Við hvetjum alla á aldrinum 12-15 ára sem hafa einlægan áhuga á íþróttum og heilsusamlegum lífstíl til að sækja um hjá NÚ. Grunnreglan er sú að “fyrstur kemur – fyrstur fær” en við áskiljum okkur rétt til þess að taka mið af búsetu, aldri, kyni og brautarvali nemenda. Umsækjendur eru boðaðir ásamt foreldri eða forráðamanni í viðtal. NÚ er lítill og fjölskyldulegur skóli með aðeins 100 nemendur og því eru að jafnaði aðeins teknir inn um 28-30 nýnemar í 8. bekk ár hvert, ásamt einstaka nemendum í 9. eða 10. bekk.
NÚ hefur sitt aðal aðsetur við Reykjavíkurveg 50 í Hafnarfirði. Íþróttir eru kenndar í Kaplakrika og Bjarkarhúsinu (bæði í stuttu göngufæri frá NÚ). Sund fer fram í Suðurbæjarlauginni. List- og verkgreinar eru kenndar bæði í NÚ og í húsi Tækniskólans, hinu megin við götuna, og heimilsfræði í glæsilegri aðstöðu Flensborgarskóla.
Rauði þráðurinn í öllu námi í NÚ er sjálfstæði og ábyrgð nemandans, þar sem nemandinn lærir að skipuleggja eigið nám og vinnu. Í NÚ er stundað mikið af vendinámi, þar sem innlögn kennara er fyrirfram aðgengileg á netinu svo hver og einn nemandi geti farið áfram á sínum hraða. Hver nemandi fær fartölvu til fullra afnota á meðan hann stundar nám hjá okkur. Í NÚ er kennt í lotum þar sem 3 námsfög eru tekin fyrir og hverri 3 vikna lotu lýkur með námsmati. Mikil áhersla lögð á að halda nemendum líkamlega virkum gegnum skóladaginn og kyrrseta takmörkuð með ýmsum leiðum. Nemendur NÚ setja sér dagleg markmið um þá vinnu sem ljúka skal á hverjum degi og gera markmiðin upp í lok hvers dags. Viltu vita meira um vendinám? Smelltu þá hér
Allir nemendur NÚ fara í gegnum bóklegt námsefni sem hjálpar þeim að ná árangri sem íþróttamönnum. Mikið tillit er tekið til íþrótta- og keppnisiðkunar þeirra.